|
05.08.2008 19:39:47 / borkurnk
Góðann daginn, búnir að fylla okkur og búnir að setja dágóðann slatta í Súluna og eitt hol eftir til að fylla Birting. Verið að hífa á 3 tíma fresti síðustu skipti sem er bara snilld. Menn gríðarléttir eftir helgina, enda lausir við allt þetta fyllerí í landi eða einsog maðurinn sagði "Til hvers???" Biðjum að heilsa öllum í landi og vonum að fólk sé búið að jafna sig.
kveðja strákarnir
»
19.07.2008 07:51:15 / borkurnk
Góðann daginn, velkomin á Barkar bloggið sem hefur verið í smá lægð. Komir nokkrar körfur um borð. Verið að toga núna síðan í gærkvöldi, ein og ein peðra á stjá. Síðast var landað á Seyðis í smá brælustoppi og kíktu á menn auðitað á Láruna, engin miskun þar á ferð! Vonum að okkar maður skemmti sér vel í tjaldútilegu um helgina og færi okkur fréttir úr henni þegar þar að kemur. Annars létt yfir mönnum einsog alltaf. kveðja strákarnir
»
28.06.2008 16:27:30 / borkurnk
Góðan daginn, við erum búnir að taka tvær sköfur með Birting og þær hafa bara gengið vel fyrir utan það hvað það vantar síld hérna, það er bara búnir að vera skítaslattar í þessum hölum. Nú er verið að leita norður og er reiknað með því að landa þessu jafnvel á morgun og leita svo á fjarlægðri mið eftir það.
Kv. Strákanir
»
26.06.2008 08:54:15 / borkurnk
Góðan morgun, við erum komnir á miðin en þar sem að makkerinn er ennþá upptekinn þá getum við lítið gert nema að dóla um svæðið og leita. Heppnin var aldeilis með okkur í morgun þar sem að við fengum gefins góðan afla frá Jónu Eðvalds og þökkum við þeim kærlega fyrir þá gjöf hún kom sér mjög vel þegar ekki er hægt að toga á móti neinum eins og er. Annars eru bara allir léttir og lítið annað að frétta.
Kv. Strákanir
»
25.06.2008 19:59:26 / borkurnk
Góða kvöldið, við erum búnir að koma með smá slatta í land og reyna að landa í vinnslu en það gekk ekki að óskum þó svo að hráefnið hafi ekki verið nema sólahrings gamalt. Við erum farnir út aftur og er verið að dóla sér eitthvað út núna því makkerinn er að toga með öðrum eins og er Birtingur ekki alveg tilbúinn. Nú í þessum töluðu orðum sitja menn mjög spenntir yfir Þýskaland-Tyrkland og eru menn frekar rauður heldur en hvítir. En við munum koma með frekari fréttir þegar við förum að gera eitthvað.
Kv. Strákanir
»
23.06.2008 11:31:18 / borkurnk
Góðan daginn, vil viljum byrja á því að óska honum Halldóri til hamingju með það að vera orðin þrítugur. Við vonum að Dóri eigi góðan dag í dag og skemmti sér vel. En þá snúum við okkur að fréttum af okkur en við erum búnir að hífa einu sinni einn slatta og er búið að koma vörpunni í hafið aftur á ný. Ætlunin er að fiska í okkur þar til Birtingur kemur og þá sigum við með það sem að við verðum komnir með í land til vinnslu. Það var að koma ný tilkynning í hús, við viljum einnig óska Ödda til hamingju með daginn. Hann segist vera orðinn 29 sem að gefur til kynna að hann sé eitthvað töluvert eldri en það.
Kv. Strákanir
»
22.06.2008 20:20:01 / borkurnk
Góða kvöldið, þá er kominn tími til að blogga smá en við erum farnir út og er áætlað að vera á miðunum eitthvað um 2 leytið í nótt en þeir eru hérna 110 sml austur af landinu, Sighvatur og Kap hafa verið að fá einhver 400 tonn þar eftir ekki mjög langt tog. En við munum reyna af vera betri í þessum túr en þeim síðasta að færa inn fréttir og munum senda inn um leið og eitthvað marvert gerist.
Kv. Strákanir
»
11.06.2008 17:42:36 / borkurnk
Þá erum við lagðir af stað heim á leið með fullan bát einnig er makkerinn okkar fullur á leið í land, við eigum samt eftir að koma við á Drekasvæðinu og ferja einn mann af Árna Friðriksyni í land. Við vorum með einn farþega með okkur í þessum túr það var hann Kári sonur Tómasar. Hérna er mynd af honum við dýptarmælirinn í lok túrsins.  Svo var hann einnig liðtækur á dekkinu.  Svo er hérna ein af honum Sigurði til að gleðja augu netverja.  Með kveðju frá Jan Mayen.
»
06.06.2008 19:40:57 / borkurnk
Við viljum biðjast afsökunnar á þessu bloggleysi en ástæðan fyrir því er a éðan eru engar fréttir, við erum komnir inn í lögsögu Jan Mayen og það eru engar fréttir héðan. Reiknum með að koma með einhverja fréttir á morgun. Kv.Strákarnir.
»
16.05.2008 20:59:29 / borkurnk
Góðann daginn, fórum aftur út um miðnætti í gærkvöldi og létum trollið fara rétt fyrir kvöldmat áðan. Lélegt útlit og lítið af fréttum annarsstaðar frá. Síðasti túr vigtaði 1766 tonn. Annars voru menn hérna spenntir að horfa á eurovision þáttinn´áðann með palla, menn að hita aðeins upp fyrir sjómanndagsballið eða sjómannadagshelgarballið. kv strákarnir
»
12.05.2008 14:39:24 / borkurnk
Góðann daginn, hér eru menn bara í sólskynsskapi í góðu veðri og yfirlæti. Vorum að koma inn úr tiltekt og verið að færa hluti til og skipuleggja pláss og sona dótarí. Fengum sæmilegasta hol í gærkvöldi, og er verið að toga núna síðan 10 í gærkvöldi. Menn misánægðir eftir leiki helgarinnar, sumir ánægðari enn aðrir. Mönnum gengur nú misvel að undirbúa sig fyrir róðurinn, en verða sennilega klárir í slaginn þegar að kemur. Biðjum að heilsa okkar fólki í landi. kveðja strákarnir
»
10.05.2008 18:06:54 / borkurnk
Góðan daginn það eru ekki miklar fréttir héðan að hafa en það sem ber svona hæst er að kokkurinn var með hamborgara veislu í kvöldmatinn þar sem sumir tóku á honum stóra sínum.  Ég er ekki viss um að hann sé að tyggja nógu oft.  Öddi að klára borgara númar 2. Kveðja strákarnir.
»
09.05.2008 14:00:36 / borkurnk
Góðan daginn þá erum við búnir að kasta trollinu og eru veiðar hafnar. Það er ekkert merkilegt frá okkur að segja nema það að kokkurinn var með franskt þema í hádeginu og var jafnvel að hugsa um að hafa franskadaga. Okkur langar til að fá upplýsingar frá öðrum skipum þar sem menn hafa aðgang að sky hvort það sé gengdarlaust ríkisofbeldi þ.e.a.s að menn séu með stillt á ríkið bara til að hafa stillt á ríkið, hérna um borð eru menn farnir að horfa á þætti eins og Fæðingarheimilið, Kiljan og Gilmore girls sumir um borð fengu þó alveg nóg af þessu laugardagsmorguninn síðasta þegar að Patti grís sönglaði sit fína stef yfir morgunmatnum. Niður með Ríkið. Kv.Strákarnir
»
08.05.2008 15:51:23 / borkurnk
Góðan daginn erum lagðir af stað frá Seyðis það viktaði 1761 tonn. Annars höfum við litlar frettir en ætlum að reyna að vera duglegir að skrifa í túrnum þó svo að Sigurður sé farinn í land. Biðjum að heilsa í bili. kv.Strákarnir
»
Síður: 1 2 3 ... 22
|